Hero Image
21 April 2021
Reykjavík, Iceland
Loftslagsmót 2021

Loftslagsmót 2021

Stefnumót fyrirtækja og stofnana um nýsköpun og lausnir á sviði loftslagsmála.


Loftlagsmótið, vettvangur fyrir fyrirtæki og aðra aðila í nýsköpun, fer fram þann 21. Apríl næstkomandi og verður að fullu rafrænt í ár. Loftlagsmótið var fyrst haldið í mars 2020 og heppnaðist einstaklega vel. Þar voru um 230 fundir haldnir með yfir 90 stofnunum og fyrirtækjum.  Fyrirtæki í nýsköpun og í grænum lausnum er boðið að hittast á örfundum til að ræða þennan sífellt mikilvægari málaflokk. Í framhaldinu gefst svo öllum tækifæri til að bóka stutta fundi (20 mínútur) með öðrum aðilum, fyrirtækjum, hugmyndasmiðum, stofnunum eða öðrum. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við loftslags- og umhverfisvænni rekstur.

Dæmi um umfjöllunarefni að lausnum og/eða því sem óskað er eftir getur verið  
allt frá betri aðferðum í flokkun, yfir í reiknivélar kolefnisspors, stefnumótun í umhverfis- og loftslagsmálum, lágmörkun úrgangs, rafrænt bókhald, kolefnisbókhald, umhverfisstjórnun, vottaðar byggingar, nýsköpun, sjálfbærar fjárfestingar, ráðgjöf í tengslum við hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í átt að umhverfisvænni rekstri.


    Hverjir ættu að skrá sig og taka þátt?

    • Fyrirtæki sem leita lausna að áskorunum á sviði umhverfis og loftslagsmála (skrá undir Request) - óska eftir fundum með fyrirtækjum sem t.d. geta boðið upp á hugsanlegar lausnir og/eða ráðgjöf. 
    • Fyrirtæki með lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála (skrá undir Product) – óska eftir fundum með fyrirtækjum sem leita að þeim lausnum. 
    • Fyrirtæki í vöruþróun - sem vilja funda með aðilum til að ræða þróun, nýsköpun innan greinarinnar og/eða hugsanlegt samstarf (geta skráð undir Request og Product)

    Loftslagsmótið verður haldið með rafrænum hætti þann 21.apríl kl. 9-12.

    Allir geta séð alla þátttakendur og skráningar óháð því hvort viðkomandi hafi skráð sig eða ekki. 

    Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi, RANNÍS, Festu og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

    Nánari upplýsingar veita Birta Kristín Helgadóttir á birta@green.is og Katrín Jónsdóttir á katrin.jonsdottir@rannis.is 

    Registration
    Closed since 21 April 2021
    Location
    Reykjavík, Iceland
    Organised by